Aðventuhátíð á Laugarvatni

Aðventudagurinn er haldinn hátíðlegur fyrsta í aðventu ár hvert á Laugarvatni en Lkl. Laugardals hefur þar nokkru hlutverki að gegna. Á jólamarkaðnum mælir Lions blóðsykur fólks og selur friðarflotkerti fyrir kertafleytinguna síðar um daginn. Þegar rökkvar tendrum við á jólatrénu  í Bjarnalundi undir ljúfum söng viðstaddra og littlu síðar fer fram kertafleyting á vatninu sjálfu þar sem Lions hefur séð um að spila tónlist fyrir fjöldann meðan kertin fljóta frá landi.

FacebookTwitterGoogle+Emailtumblr

Lionsfundur

Skemmtilegur fundur með hefðbundnu sniði auk inntöku nýs félaga og val á svæðisstjóra úr okkar röðum.
Kaffi var í höndum Sölva og Sigga Halldórs.
Gestir á fundinum voru Kristófer Tómasson og Magnús J. Magnússon.

FacebookTwitterGoogle+Emailtumblr