Siðareglur Lionsmanna

  1. Líttu á starf þitt sem köllun. Leystu það svo af hendi að þú ávinnir þér traust.
  2. Leitastu við að gera starf þitt árangursríkt. Áskildu þér hæfilega umbun erfiðis þíns, en reyndu ekki að hagnast með óréttmætum hætti.
  3. Láttu ekki ávinning þinn verða á annarra kostnað.
  4. Vertu hollur meðbræðrum þínum og heiðarlegur gagnvart sjálfum þér.
  5. Vertu aldrei eigingjarn. Leiki vafi á réttmæti gerða þinna, breyttu þá við náunga þinn eins og þú vilt að hann breyti við þig.
  6. Gerðu vináttu að markmiði, ekki leið að marki. Sönn vinátta krefst einskis í eigin þágu og má aldrei vera háð gagnkvæmum greiða.
  7. Ræktu samfélagsskyldur þínar. Vertu hollur þegn þjóðar og sveitarfélags bæði í orði og verki.
  8. Hjálpaðu meðbræðrum þínum í vanda. Þeir sem um sárt eiga að binda þurfa hluttekningu, bágstaddir og minnimáttar stuðning.
  9. Vertu gætinn í gagnrýni og örlátur á viðurkenningu. Byggðu upp, en rífðu ekki niður.
Facebook0Twitter0Google+0Emailtumblr