Þá er loksins búið að hlaða inn nokkrum völdum myndum úr vorferð klúbbsins.
Njótið
Lkl. Laugardals mun hafa flotkerti til sölu á góðu verð á jólamarkaðnum á morgun svo það ættu allir að geta tekið þátt í kertafleytingunni um kvöldið.
Klúbburinn mun einnig bjóða uppá ókeypis blóðsykurmælingar á staðnum en þeir sem vilja nýta sér það ættu að hafa í huga að fara fyrst í blóðsykurmælingu áður en farið er í kræsingarnar hjá kvenfélaginu svo mælingin gefi sem réttasta mynd.
Við í Laugardal undirbúum jólin og bjóðum öllum að heimsækja okkur á Laugarvatn þann 1. desember. Þá kveikjum við á jólaljósum og höldum jólamarkað.
Dagskrá:
GRUNNSKÓLINN LAUGARVATNI:
KL. 13.30 ÁVARP
SÖNGKÓR MIÐDALSKIRKJU ÁSAMT VIÐSTÖDDUM SYNGJA JÓLALÖG
KL.14.00 JÓLAMARKAÐUR KVENFÉLAGSINS
KAFFISALA – KAKÓ – VÖFFLUR MEÐ RJÓMA
BJARNALUNDUR
KL. 17.00 KVEIKT Á JÓLALJÓSUM Á JÓLATRÉ Í BJARNALUNDI
ALLIR SYNGJA JÓLALÖG
VIÐ VATNIÐ
KL.17.30 KERTAFLEYTING – AÐVENTUSTEMNING
Laugdælingar, sameinumst um að skreyta dalinn okkar fyrir 1.des.
Verum öll með og látum ljós okkar skína!
Allir velkomnir !
KVENFÉLAG LAUGDÆLA
LIONSKLÚBBUR LAUGDÆLA
SÖNGKÓR MIÐDALSKIRKJU
Kæru Lionsfélagar !!!!!
Gleðilegt nýtt Lions-ár ! Nú styttist í fyrsta fund hjá okkur en hann verður haldinn í miðvikudaginn 26. september í fundaraðstöðunni okkar. Skorum á alla félagsmenn að mæta og mæta vel í allan vetur.
Skróprefsingar verða teknar upp í vetur sem geta falist í fjársektum fyrir hvert skróp eða rassskellingum á vorfundi verði skrópin of mörg *blikk, blikk* .
Ný stjórn
Nýir tímar
Kveðjur
Jóhannes-Tofi-Pálmi-Melvin J
Lkl. Laugdals hélt uppá 40 ára afmæli sitt með dagsferð um nærsveitir, laugardaginn 12. maí. Klúbbfélagar ásamt mökum hófu ferð klukkan 14.00 og héldu fyrst að Reykhól á Skeiðum og heimsóttu húsráðendur þar. Síðan var haldið að Ásgerði í Hrunamannahreppi og minkabú Sigurðar Jónssonar og fjölskyldu skoðað. Mikið tíst heyrðist frá búrunum þar sem flestar læður voru nýgotnar. Fylgst er með frjósemi hverrar læðu og allt skráð í tölvu. Næst var haldið í Hrunarétt en hún er í endurbyggingu og notast er við stuðlaberg í almenning og hliðstólpum dilka. Verður þetta sérstakt mannvirki þegar verkinu lýkur. Þá var komið að Flúðasvepp og starfsemin skoðuð undir leiðsögn Eiríks Ágústssonar framleiðslustjóra. Kom það ferðalöngum á óvart hversu neysla sveppa er mikil hér á landi. Ferðin endaði svo með fundi og hátíðarkvöldverði á Hótel Geysi. Þar voru þeir Pálmi Hilmarsson og Sævar Ástráðsson gerðir að Melvin Jones félögum vegna margvíslegra starfa í þágu klúbbsins.
Hreinsunardagur á Laugarvatni
Laugardaginn 19. maí kl 10:00
Kæru Laugdælingar
Ætlunin er að hittast við grunnskólann og taka til í þorpinu og á vatnsbakkanum. Ef næg þátttaka fæst hreinsum við meðfram veginum líka.
Að tiltekt lokinni verður grillað við íþróttamiðstöðina (farfuglaheimilið) niður við vatn. Eftir grillið verður börnunum boðið í báta út á vatn.
• Samkaup-Strax gefur pylsur, pylsubrauð og meðlæti
• Farfuglaheimilið lánar aðstöðu og grill með kolum og kveikilegi
• Björgunarsveitin Ingunn býður börnum í bátsferð eftir grillið
• Bláskógabyggð gefur svarta ruslapoka
Gámastöðvar Bláskógabyggðar verða opnar þennan dag frá 13-18 og losun verður gjaldfrjáls.
Hlökkum til að sjá ykkur:
Samkaup-Strax
Farfuglaheimilið
Ungmennafélag Laugdæla
Hollvinir Laugardals
Lionsklúbbur Laugardals
Bláskógabyggð
Björgunarsveitin Ingunn
Veitingahúsið Bláskógar
Menntaskólinn að Laugarvatni
Fundurinn sem venju samkvæmt ætti að vera miðvikudaginn kemur (09.05.2012) fellur niður eða verður sameinaður vorferðar klúbbsins næstu helgi (12.05.2012).
Mæting í vorferðina lofar góðu og veðurspáin sem stendur þokkaleg þó regnhlíf gæti komið sér vel svo bleytan rugli ekki hárgreiðslunni… eitthvað sem ritari þarf ekki að óttast.
Vorferðin verður betur kynnt félagsmönnum með tölvupósti síðar.
Lkl. Laugardals fór í það í gær að bera fúavörnin á sparkvöllin við grunnskólann á Laugarvatni í glampandi sól og sumarfíling. Í heildina koma um 10 lionsmenn að verkinu en kærkomna aðstoð við málunina veittu þær Ástrós Pálmadóttur og Elinborg Jóhannsdóttir sem og Ásta Rós Rúnarsdóttir sem hljóp um svæðið með myndavél.