Jæja, þá hefst flugeldasala okkar í dag. Eins og útkallslisti Ingunnar sýnir er nóg að gera hjá sveitinni og ekki síst þessa dagana eftir að tók að snjóa. Flugeldasalan er árleg og mjög mikilvæg fjáröflun fyrir sveitina svo það er áríðandi að heimamenn muni að versla sína skotelda í heimabyggð 😉 og þeir sem ekki búa í laugardalnum ættu auðvitað að beina viðskiptum sínum til Ingunnar engu að síður 😉
Björgunarsveitin Ingunn óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og minnir á að fara þarf varlega þegar flugeldar eru meðhöndlaðir, hlífðargleraugu og öruggur standur/snjóskafl í passlegri fjarlægð frá fjölskyldunni.
Category Archives: 2011
Fastur!
Útkall F-3 Grænn
Bíll fastur á vegi 365, Lyngdalsheiðarvegi rétt utan við afleggjarann að Selfossi.
Fastur bíll
Útkall F-3 Grænn
Bíll útaf við Giljareiti. Upplýsingar hjá formanni.
OMG! Snjór!
Útkall F-3 Grænn
Fastur bíll við Stekká. Upplýsingar hjá formanni.
Fastur bíll.
Útkall F-3 Grænn
Fastur bíll við Skillandsá. Uppl. hjá formanni.
Fundarboð
Á fundi í kvöld verður farið í leitartækni. Allir að mæta!